fimmtudagur, 4. febrúar 2010

Auglýsingamiðlun í samstarf við Transmit

Auglýsingamiðlun hefur bæst í hóp viðskiptavina Transmit og hefur fyrirtækið nú gerst notandi að Smelltu.

Auglýsingamiðlun hefur áralanga og víðtæka reynslu af birtingamálum og við hjá Transmit hlökkum mjög til þess að starfa með jafn metnaðarfullu fyrirtæki.

Við mælum með að þið fylgist með þeim á Twitter! http://twitter.com/ammediaiceland

þriðjudagur, 2. febrúar 2010

Smellhlutfall gefið upp í prósentum (smellir per 100 birtingar)

Fyrir marga auglýsingaborða er smellhlutfall (e. Click through rate eða CTR) einn mikilvægasti mælikvarðinn um árangur auglýsingarinnar. Smellhlutfall mælir hversu oft er smellt á borða miðað við hversu oft hann birtist.

Hingað til hefur Smelltu sýnt smellhlutfall sem hlutfall af hverjum þúsund birtingum, þ.e. prómíl, en sumir viðskiptavina okkar hafa óskað eftir því að fá að sjá þessar niðurstöður í prósentum.

Nýjasta viðbót við Smelltu er þess vegna sá möguleiki að geta valið um það hvort smellhlutfall birist sem hlutafall af hverjum 1000 birtingum, eins og áður, eða sem hlutfall af hverjum 100 birtingum, þ.e. í prósentum.

Þessu er breytt með því að smella á „stillingar“ efst í hægra horninu. Allar niðurstöður um smellhlutfall eru þá sýndar í prósentum. Hér að neðan er myndband sem sýnir hvernig þetta er gert.

föstudagur, 29. janúar 2010

Birtingahúsið í samstarf við Transmit

Transmit hefur skrifað undir samning við Birtingahúsið um notkun á forritinu Smelltu.

Kjörorð Birtingahússins er „Fræði í framkvæmd“ og endurspeglast í þeirri áherslu sem fyrirtækið leggur á mælingar, upplýstar ákvarðanir og miðlun þekkingar um markaðsmál til auglýsenda. Birtingahúsið leggur mikla áherslu á að hámarka nýtingu auglýsingafjár viðskiptavina sinna og notkun fyrirtækisins á Smelltu er einn liðurinn í því.

Frekari upplýsingar um Birtingahúsið er að finna á www.birtingahusid.is.

miðvikudagur, 23. desember 2009

Transmit og Ratsjá gera samstarfssamning

Transmit og Ratsjá hafa undirritað samning þess efnis að Ratsjá styðst við Smelltu við mælingar á öllum sínum vefborðum. Ratsjá hefur alla tíð verið framarlega á sviði markaðssetningar á netinu og er umhugað um að herferðir séu árangursríkar og upplýsingagjöf til viðskiptavina sé rík.

Með þessu samstarfi er ljóst að Ratsjá mun auka þjónustu sína enn frekar og um leið auka skilvirkni auglýsinga sinna.

Það gleður okkur hversu góðar undirtektir Smelltu hefur fengið og augljóst að skortur hefur verið á aukinni upplýsingagjöf þegar kemur að vefauglýsingum og virði þeirra. Undanfarin ár hafa fjárfestingar í vefauglýsingum aukist til muna erlendis. Á Íslandi hefur vefauglýsingamarkaðurinn stækkað hægar, en það er okkar trú að vegsemd vefauglýsinga muni aukast til muna á næstu árum.

föstudagur, 11. desember 2009

Hver er munurinn á Smelltu og Google Analytics?

Við erum oft spurðir að því hver munurinn sé á Smelltu og Google Analytics (framvegis skrifað GA). Munurinn felst einkum í því að mæling GA fer fram á þeirri síðu sem er verið að auglýsa á meðan mæling Smelltu fer fram hjá auglýsandanum sjálfum, þ.e. í borðanum. Þetta sést betur á skýringamyndinni hér að neðan.




Vegna þess að mælingar Smelltu fara fram á vefmiðlinum sjálfum getur Smelltu mælt fjölda birtinga, þ.e. hversu oft miðilinn sýnir lesendum sínum auglýsinguna. Þetta gerir okkur kleyft að mæla smellhlutfall (e. clickthrough rate eða CTR) sem segir til um það hversu oft er smellt á borða miðað við hversu oft hann birtist. Smellhlutfall er besta leiðin til að meta hversu vel auglýsingaborða gengur að fanga athygli fólks.

Sem dæmi mældum við einu sinni borða hjá viðskiptavin þar sem GA mældi stóraukinn fjölda heimsókna á mánudegi. Smelltu sýndi sömuleiðis aukinn fjölda smella:




Þegar mæliniðurstöður fyrir birtingar og smellhlutfall sama borða eru skoðaðar fyrir sama tímabil kemur í ljós af hverju smellunum fjölgaði:




Á þessum tiltekna mánudegi höfðaði borðinn verr en áður til notenda (smellhlutfallið hafði lækkað) en birtingar höfðu stóraukist. Þennan mánudag hefði GA því gefið ranga mynd af gæði borðans.

Ástæða þess að birtingum fjölgaði gæti t.d. verið sú að stór frétt birtist á miðlinum þennan dag og borðinn því verið sýndur fleiri lesendum. Borðunum í þessu hólfi hefði líka getað fækkað þennan mánudag sem þýðir fleiri birtingar. Flestir miðlar eru með fleiri en einn borða í hverju auglýsingahólfi og á mánudögum byrja oft ný sölutímabil.

Google Analytics er mjög gott til síns brúks en þegar kemur að mælingum á árangri auglýsingaborða gefur Smelltu, sem er sérsniðið að mælingum á auglýsingaborðum, skýrari mynd.

laugardagur, 5. desember 2009

Morgunblaðið fjallar um Smelltu


Í dag fjallar Morgunblaðið um Smelltu og birtir þar viðtal við hinn geðþekka Agnar Sigmarsson, einn af þrem stofnendum Transmit ehf. Í umfjölluninni segir m.a.

"Forritið Smelltu gerir auglýsendum kleift að fylgjast nákvæmlega með því hversu vel auglýsingaborðar á vefsíðum virka og til hversu margra þeir ná. Forritið er það fyrsta sem sprotafyrirtækið Transmit ehf. þróar en markmið þess er að þróa forrit sem hjálpa markaðsfólki að koma skilaboðum sínum á framfæri."

Við hvetjum lesendur Smelltu bloggsins eindregið til að kaupa laugardagsblað Morgunblaðsins þessa helgina, en ef það er uppselt má nálgast PDF útgáfu af blaðsíðu 26 hér, en þar birtist umfjöllunin.

miðvikudagur, 2. desember 2009

Markaðssetning á netinu

Út er komin bókin Markaðssetning á netinu en hún er ætluð íslensku markaðsfólki sem notar eða hyggst byrja að nota netið í markaðsstarfi sínu. Höfundar bókarinnar eru Guðmundur Arnar Guðmundsson sem fer fyrir markaðsstarfi Icelandair á Íslandi og Kristján Már Hauksson sem er stofnandi Nordic eMarketing.

Þeir leituðu til okkar hjá Smelltu vegna umfjöllunar um vefborða á Íslandi og úr varð kafli um vefforritið og hvernig það nýtist við að hámarka árangur vefauglýsinga.

Ég gluggaði í bókina í dag og líst mér vel á gripinn. Bókin er skilmerkilega upp sett og inniheldur hagnýtar upplýsingar um hvernig best er að bera sig að þegar kemur að markaðssetningu á netinu. Þetta er skyldueign í bókasafni markaðsmanna sem ætla sér að ná árangri á netinu.

Þess ber að geta að bókin er auglýst á vefmiðlum og að sjálfsögðu nota þeir Smelltu til þess að mæla árangur auglýsinganna.

Endilega kíkið á heimasíðu bókarinnar sem er að finna hér: www.online.is